23.11.2011 15:24
Haustið ... komið og farið
Haustið er svo sannarlega komið og vetur er handan við hornið ... brrrr mér verður hálf kalt við tilhugsunina. Það hefur aldeilis verið nóg að gera síðan skólinn hófst á ný í lok ágúst. Í september var ég í kúrsnum methodlære, sem er sambland af tölfræði, faraldsfræði, aðferðarfræði og siðfræði ... já algjör hrærigrautur !! Þetta var bara nokkuð strembin kúrs og nóg að lesa þennan mánuðinn. Ég viðurkenni það alveg að það var MJÖG erfitt að demba sér í lestur á ný eftir yndislegt slökunar-sumar og hvað þá að fara nánast strax í próf !! Þetta hafðist nú samt ... sem betur fer :) Í september lok byrjaði ég svo í stórum kúrs sem endar með 6 klukkutíma skriflegu prófi í janúar !! Úúúúfffff mér hryllir við tilhugsunina að sitja á rassinum í heila 6 tíma :/ Planið er svo að kíkja í heimsókn til Íslands í lok janúar ... hugsanlega í heilar 3 vikur !!
"Stóra" stelpan mín hún Ingibjörg Þóra hefur þroskast mikið á þessum haustmánuðum og er nú alveg að verða 3 ára gömul !! Hana hlakkar mikið til að eiga afmæli og spyr nánast daglega hvort hún eigi nokkuð afmæli í dag. Þvínæst syngur hún afmælissöngin (bæði á íslensku og dönsku) og blæs á þykistunni kerti :) Hún veit að hún á afmæli 28. nóvember og að þá verði hún þriggja ára gömul og fái pakka. Í september hætti "stóra" stelpan alveg að nota bleyju á leikskólanum enda löngu farin að pissa í koppin heima. Við ákváðum því að prufa að láta hana líka vera bleyju lausa á daginn heima fyrir og það hefur gengið mjög vel. Í upphafi komu einstaka pissu pollar á gólfið en nú er þetta alveg komið hjá dömunni. Undanfarið hefur Ingibjörg Þóra haft sérstaklega gaman af því að velta fyrir sér hina ýmsu liti og bókstafi. Hún er nú orðin nokkuð góð í að þekkja litina og það er gaman að segja frá því að þegar hún nefnir græna litinn þá fylgir nánast alltaf "grænt grænt grænt eins og grasið útí útí haga" :) Hún sýnir stafrófinu og bókstöfum sérstaklega mikinn áhuga og þekkir nú orðið mjög marga stafi og hljóðin þeirra. Hún vill ólm lesa um stafina fyrir nætursvefninn og veltir mikið fyrir sér hverjir eigi hvaða stafi.
Þrátt fyrir annríki hafa haustmánuðirnir verið ljúfir. Foreldrar Stefáns komu í heimsókn til okkar í lok september og mamma svo strax í framhaldi af því. Við Ingibjörg Þóra höfum verið duglegar að hitta vinkonur hennar þær Vigdísi Lóu og Viktoríu Draumeyju í dýragarðinum og á róló ... enda óendalega mikið af skemmtilegum leiksvæðum hér í kaupmannahöfn. Í síðustu viku hittum við fjölskyldan góða vini (Gísla, Þórhildi, Vigdísi Lóu, Guðríði og Viktoríu Draumeyju) í Jólatívolí og ég er ekki frá því að það hafi komið mér í nett jólaskap :)
Written by Sigrún Birna
Today's page views: 0
Today's unique visitors: 0
Yesterday's page views: 24
Yesterday's unique visitors: 11
Total page views: 40549
Total unique visitors: 14481
Updated numbers: 17.5.2012 03:03:30
