09.04.2009 23:02

UngBarnaSund !!

Á síðasta laugardag fórum við Stefán með "litlu" bolluna okkar í fyrsta ungbarnasunds- tímann. Ég var nú svolítið stressuð fyrir tímann því stundum hefur sú litla orðið eitthvað óörugg í baðinu heima og þá orgað duglega þar til henni er gefið brjóst. Tíminn gekk hins vegar frábærlega og Ingibjörgu Þóru virtist líða mjög vel í lauginni. Það voru bara tvö önnur börn í sundtímanum og þau voru bæði 6 mánaða en "litla" bollan okkar var alveg eins og 8 mánaða í samanburði við þau. Það kemur sér vel að vera svona feit og flott í sundi því hún flaut rosalega vel í vatninu emoticon

31.03.2009 14:32

HlÆjaNDi RjóMaBOllA :D

Nú er Ingibjörg Þóra er orðin fjögurra mánaða gömul og nú er loksins hægt að segja að magakveisann sé alveg búin ... sem betur fer. Sú litla er farin að sofna miklu fyrr á kvöldin eða í kringum tíu leytið. Nætursvefninn hefur færst hægt og rólega frá klukkan fimm á nóttunni til tíu á kvöldin ... þvílíkur munur. Nú sefur hún yfirleitt svona níu tíma á nóttinni ... vaknar reyndar nokkrum sinnum til að fá að drekka en sem betur fer sofnar hún núna alltaf strax aftur. Við erum því öll farin að ná þokkalega góðum nætursvefni. Litla bollan mætti nú samt alveg sofa aðeins meira yfir daginn en þá getur verið heilmikið basl að fá hana til að leggja sig. Ef hún sofnar inni sefur hún yfirleitt ekki lengur en hálftíma í senn. Því miður vill hún ekki taka snuð og það gengur því ekkert að reyna að stinga upp í hana duddu og plata hana þannig til að sofa lengur. Til þess að hún nái einum góðum blundi yfir daginn þarf ég að pakka henni ofan í vagninn og helst að fara í góðan göngutúr um hverfið. Þar sem ég bý nánast við hliðin á Smáralind þá hef ég gert nokkrar tilraunir að ganga þar inni þegar veðrið er leiðinlegt en hún fer nánast alltaf strax að orga í vagninum og hættir ekki fyrr en ég er komin aftur út !! Ég viðurkenni það nú alveg að ég nenni bara hreinlega ekki að ganga með vagninn marga klukkstundir alla daga og  ég læt því  hana stundum sofa fyrir utan stofugluggann. Ef ég geri það þá vaknar hún nánast alltaf og fer að gráta á 20-30 mínútna fresti !! Þá þurfum við Stefán að vera fljót til og rugga henni aftur í svefn ... stundum þarf að labba nokkra hringi í kringum blokkina. Hún lætur sem sagt enn hafa töluvert fyrir sér litla dúllan emoticon

Ingibjörg Þóra heldur áfram að vaxa og dafna á ógnarhraða. Undanfarnar tvær vikur hefur hún loksins getað dundað sér almennilega á leikteppinu góða en þegar hún er vel stemmd þá getur hún alveg unað sér þar í hálftíma til fjörutíu mínútur. Daginn fyrir fjögurra mánaða afmæli skonsunnar kom afi Hafsteinn í heimsókn og Ingibjörg Þóra teygði sig í fyrsta sinn í dót sem hann hélt fyrir framan hana. Síðan þá hefur hún náð að mastera þessa tækni og er nú orðin rosa dugleg að teygja sig eftir hlutum í kringum sig. Í gær hló svo litla daman í fyrsta sinn mömmu sinni og pabba til mikillar ánægju. Ég var að syngja og dansa fyrir framan hana og fannst henni það svona líka rosa gaman. Stefán náði svo að láta hana hlæja í dag einnig með því að syngja og sprella.

Ingibjörg Þóra er mjög athugul og hún er dugleg að skoða heiminn. Henni líst nú ekki alltaf vel á það sem hún sér og lætur þá skoðanir sínar í ljós með kröftugu orgi. Litla krúttið er nú orðin töluvert mikil mannafæla og orgar oft duglega þegar ókunnugir kjá framan í hana. Ef hún er vel úthvíld vill hún reyndar yfirleitt leyfa öðrum að halda á sér ... en er samt á varðbergi og horfir mikið til mömmu sinnar. Þegar hún er þreytt þá vill hún hins vegar bara kúra í hálsakoti mömmu sinnar og pabba. Mér finnst auðvitað voðalega leiðinlegt að hún vilji ekki leyfa öðrum að knúsa sig en þetta er bara merki um þroska og maður verður bara að sætta sig við það.

15.03.2009 00:50

Kvef og augnsýking :(

Elsku litla skonsan er nú komin með hor í nös og sýkingu í vinstra augað. Undanfarna daga hefur hún verið að fikta svo mikið í andlitinu sínu og verið óvenju pirruð. Í morgun var hún svo öll klóruð í framan eftir nóttina og rauð í vinstra auganu. Við Stefán héldum nú fyrst að hún hefði bara potað svona ill í augað sitt en svo versnaði roðinn og bólgan þegar leið á daginn. Þar sem hún var eitthvað óvenju pirruð og ómöguleg þá fór ég með hana í fyrstu heimsókn sína á læknavaktina m.a. til að láta kíkja í eyrun. Sem betur fer var ekkert í eyrunum en hún fékk augndropa við sýkingunni þannig að hún verður vonandi fljótlega betri í auganu sínu.


Því miður er litla krúttið okkar farin að vera svolítil mannafæla !! Undanfarna daga hefur hún verið að taka upp á því að gráta hjá öllum öðrum en mömmu sinni og pabba :( Ég er nú ekkert alltof kát með þessa hegðun dömunnar og finnst auðvitað voða leiðinlegt að hún gráti þegar hún er í fangi ömmu sinnar og afa (sem hún sér nánast daglega !!). Þrátt fyrir það ákvað ég að skella mér á reunion með bekknum í kvöld en það er fyrsti hittingurinn síðan við útskrifuðumst árið 2007 og skonsan var í pössun hjá mömmu og pabba á meðan. Sú litla fékk bara vel að drekka áður en ég fór og svo skellti amma Inga sér út í göngutúr með vagninn. Þegar skonsan vaknaði vildi hún auðvitað fá að drekka á stundinni og var ekki alveg sátt þegar afi bauð henni pela í stað brjóstsins góða. Hún orgaði víst duglega en þegar mamma og pabbi voru búin að klæða hana í útigallann og gera sig tilbúin til að rúnta með hana niður í bæ til mín þá ákvað hún skyndilega að fá sér smá smakk úr pelanum og spjalla svolítið við afa. Hún sofnaði svo á rúntinum í bílnum en vaknaði um klukkan 22 og vildi fá mömmu sína og það strax. Ég kom þá bara beint heim ... náði sem betur fer að klára að borða matinn :) Nú ætla ég að taka hana í massíva pelaþjálfun á næstu vikum og heimsækja ömmu og afa daglega svo að hún hætti við að verða mannafæla litla gullið.

08.03.2009 20:53

TeNNuR !!

Ótrúlegt en satt þá eru þrjár tennur að brjóta sér leið út í gómnum á litlu skonsunni !! Fyrir tveimur dögum var ég stödd með Sigrúnu og Kristjáni Víði inn í búð að kaupa pakka handa nýfæddri prinsessu Guðrúnar Valdísar þegar skonsan fer að gráta ... sá ég þá ekki bara skína í tvær hvítar tennur í neðri góm. Ég held að þetta séu augntennur !! Í kvöld voru mamma, pabbi og ég að skoða upp í munninn á dömunni og þá komum við auga á aðra tönn vinstra megin í efri góm. Sú tönn er einnig til hliðar í gómnum og við erum ekki viss hvort það sé augntönn eða lítill jaxl. Greyið litla Ingibjörg Þóra ... magakveisann er varla búin þegar hún fer að fá tennur ... það er ekki skrítið þó að skonsan sé stundum svolítið pirruð og ómöguleg.

05.03.2009 16:17

Risa rjómabollan hún Ingibjörg Þóra


Í gær fórum við Stefán með Ingibjörgu Þóru í þriggja mánaða skoðun. Elsku "litla" skonsan okkar er orðin 7790 gr og 62.5 cm !! Algjör ofurbolla. Þess má geta að við mæðgurnar vorum nánast jafn þungar við fæðingu en ég var hins vegar orðin sex mánaða þegar ég náði þessari þyngd !! Skonsan fékk einnig sína fyrstu bólusetningu. Hún orgaði duglega þegar hún var sprautuð í lærið og var lengi að jafna sig ... hjúkkan sagði að þetta væri greinilega versta sprautan sem hún hafði gefið alla vikuna :)

28.02.2009 14:13

3 mánaða rúsína :D



Nú er litla skonsan okkar orðin 3 mánaða gömul og magakveisan fer nú bráðum að heyra sögunni til. Síðastliðnar tvær vikur hefur Ingibjörgu Þóru liðið mun betur og nú er hún nánast alveg hætt að gráta svona sárt og mikið eins og hún gerði. Hún er einnig farin að sofa mun betur þá aðallega á daginn. Nú þarf ég ekki lengur að ganga marga klukkustundir á dag með vagninn svo að hún haldist sofandi. Auk þess er hún aðeins farin að geta legið og skoðað dótið sitt án þess að fara strax að gráta. Það er rosalega mikill munur að þurfa ekki að hafa hana á handleggnum allan daginn.

Litla gullið heldur áfram að dafna og er komin með fallegustu fellingar ... ég hef hins vegar því miður alveg misst rassinn minn ... hann stækkar vonandi bara aftur þegar hún er hætt á brjósti. Nú er hún nánast alveg farin að halda höfði og brosir sínu breiðasta þegar henni líður vel. Við Stefán bíðum nú bara eftir að hún byrji að hlæja. Sem betur fer er hún allt annað barn núna.

09.02.2009 00:20

Skonsan a.k.a. Ingibjörg Þóra !!



Þá hefur litla skonsan okkar LOKSINS fengið nafnið sitt. Hún var skírð 1. febrúar heima í Fögrukinn og heitir Ingibjörg Þóra í höfuðið á mömmu minni og Þóru systur hans Stefáns. Pabbi bjó til 30 lítra af dýrindis kjötsúpu í tilefni dagsins og það voru gestir langt fram á kvöld.  Við þökkum ættingjum og vinum kærlega fyrir komuna og allar fallegu gjafirnar emoticon



Nú er Ingibjörg Þóra orðin 10 vikna gömul og er alltaf jafn mikil rjómabolla. Þessar 10 vikur hafa ekki verið alveg jafn auðveldar og við Stefán héldum að þær yrðu. Þegar ég var ólétt sá ég fyrir mér að við myndum eignast litla væra stúlku sem myndi sofa nánast 24/7 í fallegu vöggunni sinni og þess á milli brosa og hjala. Sá draumur rættist ekki ... því litla ljósið okkar hefur verið einstaklega óvær og liðið mjög illa. Ballið byrjaði þegar hún var aðeins tvegga vikna gömul. Þá byrjaði hún að gráta mikið á kvöldin og fram á nótt. Líðan hennar fór versnandi á næstu vikum. Hún var oftar en ekki óhuggandi, grét/öskraði mest allan daginn og fram undir morgun. Sjöunda janúar mættum við með dökkbláa bauga niður á höku í sex vikna skoðun með litla öskurapann. Eftir lýsingar okkar vildi barnalæknirinn að ég myndi prófa að fara á mjólkurlaust fæði í fimm daga til að athuga hvort um kúarmjólkur óþol væri að ræða hjá litlu dömunni. Enginn breyting varð á líðan skonsunnar og það var því ákveðið að það væri best fyrir alla að hún yrði sett á lyf við ristilkrömpum. Litla gullið okkar byrjaði á dicykloverinhydrokloridi 12. janúar og það varð sem betur fer mikil breyting á líðan hennar. Þrátt fyrir það er hún samt oft vansæl, sefur lítið og grætur enn mikið. Það er okkar góðu foreldrum og dicykloverinhydrokloridi að þakka að við Stefán höfum haldið geðheilsu en án þeirra værum við bæði búin að reita af okkur öll líkamshár og naga af okkur allar neglur fyrir löngu !! 

02.01.2009 04:02

Brosandi rjómabolla :)




Þá er litla skonsan okkar orðin mánaðargömul ... ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Hún er því miður ekki eins vær og góð lengur litla krúttið en hún orgar yfirleitt duglega milli tíu og tvö á nóttinni og sumar nætur aðeins lengur. Við nýbökuðu foreldrarnir erum því með bauga niður á höku flest alla daga. Þrátt fyrir magakveisuna þá er hún hin duglegasta að drekka og dafnar alveg rosalega vel enda mér finnst hún vera nánast límd við brjóstin á mér allan sólarhringinn. Hún er núna rúmlega mánaðargömul og er 5.5 kg ... algjör rjómabolla.

Daginn fyrir mánaðarafmælisdaginn sinn brosti hún í fyrsta sinn til mömmu sinnar henni til mikillar ánægju. Á afmælisdaginn sjálfann fékk Stefán sitt fyrsta bros. Síðan liðu nokkrir broslausir dagar en á gamlársdag bætti hún upp fyrir það og brosti sínu breiðasta til pabba síns, ömmu sinnar og afa emoticon 

10.12.2008 18:39

Litla skonsan dafnar vel



Nú er litla skonsan okkar orðin 12 daga gömul. Hún er rosalega vær og góð og við Stefán krossum bara fingur og vonum að hún verði það áfram. Hún sefur enn mest allan daginn en er farin að vaka svolítið meira með hverjum degi sem líður. Það kom hjúkrunarfræðingur hingað heim í gær m.a. til þess að vikta snúlluna. Sú litla er nú orðin 4100 grömm og hefur því þyngst um 855 grömm frá því hún kom heim á mánudaginn fyrir viku síðan !! Það er greinilega góður rjómi í brjóstunum hér á bæ ;) Annars var ég eiginlega bara að fatta það í dag hvað það er stutt til jóla og ég á enn eftir að kaupa eitthvað af jólagjöfum. Það er ótrúlegt hvað desember mánuður líður alltaf hratt.

07.12.2008 18:16

Lítil falleg prinsessa kom í heiminn 28.11.08 :)




Litla prinsessan okkar Stefáns kom í heiminn 28.11.08 klukkan 15:36. Hún var 3520 grömm og 51 cm ... algjör snúlla. Daginn áður en hún leit dagsins ljós vaknaði ég við það að það var aftur farið að blæða. Við Stefán flýttum okkur niður á fæðingardeild og ég hélt að sú litla mynda koma í heiminn þann dag því ég var með töluverða samdrætti og pirring í leginu samfara blæðingunni. Þegar leið á daginn þá hætti hins vegar að blæða og ég var flutt niður á meðgöngudeildina. Um kvöldið hitti ég á sérfræðinginn sem hafði fylgst með mér á meðgöngunni og henni fannst skynsamlegt að sprengja belginn morguninn eftir og koma þeirri litlu í heiminn. Stefán ákvað því að fara snemma heim í háttinn þetta sama kvöld til þess að vera úthvíldur fyrir stóra daginn. Hins vegar fór aftur að blæða seinna um kvöldið og ég fór að fá sterkari samdrætti. Stefán kom því aftur niður á spítala og ég var flutt upp á fæðingardeild og höfð í mónitor um nóttina. Það var skrítinn tilfinning að vakna daginn eftir vitandi að sú litla mynda líta dagsins ljós þann sama dag. Það var ákveðið að sprengja belginn inn á skurðstofu til þess að hægt væri að taka hana með keisara ef það færi að blæða mikið. Sprengingin gekk mjög vel, ég fór strax að finna fyrir samdráttum og var færð inn á fæðingarstofu. Fæðing prinsessunnar gekk alveg ótrúlega vel og átti sér stað á gamla eðlilega mátann en sjálf bjóst ég alltaf við því að þurfa að fara í keisara. Það fyrsta sem ég sagði þegar ég sá þá litlu var víst "hún er alveg eins og ég þegar ég fæddist" :) Hún var vel búttuð með bollu kinnar og öll þakin yndislegri fósturfitu. Þegar sú litla var komin út hélt ég að það erfiða væri allt búið ... en þá var ballið bara rétt að byrja því fylgjan sat sem fastast og vildi ekki skila sér út. Litla snúllan fór því fljótlega í fang pabba síns meðan að verið var að hnoðast á legi mömmunnar til þess að reyna að losa fylgjuna. Eftir endalaust langan tíma, blóð, tár, ælu og svita endaði ég inn á skurðstofu þar sem fylgjan var tekinn út. Þetta vesen með fylgjuna olli því að ég missti rúma tvo lítra af blóð og féll niður í 57 í hgb. Ég neyddist því til að þyggja tvær einingar af blóði og við komum ekki heim með litlu skvísuna fyrr en kvöldið 1. desember.



Nú er rúm vika síðan að litla snúllan kom í heiminn og allt gengur þetta ljómandi vel. Stefánsdóttir er dugleg að drekka og verður mannalegri með hverjum degi sem líður. Við erum búin að fá fullt af heimsóknum og sú litla hefur fengið heilan helling af fallegum gjöfum. Við Stefán viljum þakka kærlega fyrir allar fallegu kveðjurnar og gjafirnar sem okkur hefur borist.



17.10.2008 12:46

Hvernig verður lítil baun að barni ??



Baunin er víst ekki lengur lítil enda eru búnar rúmar 32 vikur af meðgönguni. Nýjustu fréttir eru þær að fylgjan mín reynist vera fyrirsæt (þ.e. hluti hennar liggur yfir leghálsinum). Þetta kom í ljós þegar ég var genginn rúmar 30 vikur en þá fór að blæða auk þess sem ég fór að fá samdrætti. Það blæddi nú ekki mikið og samdrættirnir fóru fljótlega að róast en til öryggis þá fékk ég tvær sterasprautur til þess að örva þroska lungnanna hjá litlu músinni ef ske kynni að hún myndi ákveða að koma svolítið snemma í heiminn. Stefán var komin norður á Sauðarkrók þegar þetta gerðist og brunaði á sportbílnum gegnum snjóskafla í bæinn. Sem betur fer er krílið enn í bumbunni og vonandi mun hún bakast þar svolítið lengur. Eftir að þetta komi í ljós þurfti ég að hætta að vinna og á að vera í algjörri afslöppun það sem eftir er meðgöngunnar. Ég er bara svo rosalega feginn að þetta gerðist ekki í meðan að við vorum stödd í Frakklandi því annars hefðum við líklegast þurft að vera þar fram yfir fæðingu.

27.09.2008 19:20

FrAkklAnd og FlensA



Þá erum við komin aftur á klakann eftir frábæra Frakklandsferð :) Við gistum að sjálfsögðu hjá Þóru systir Stefáns og fjölskyldu hennar í litla strandbænum Hardelot í norður hluta landsins. Við tókum því bara rólega í ferðinni enda er ég búin að vera eitthvað svo endalaust þreytt undanfarnar vikur og Stefán var búin að vinna allt of mikið í sumar. Við vorum með bílaleigubíl allan tímann og ákváðum því að fara í tvær stuttar ferðir. Sú fyrri var til Honfleur sem er lítill sætur bær aðeins fyrir sunnan Hardelot en í þeirri seinni fórum við til Nurburgring í Þýskalandi !! Þar sem ég hef lítið úthald þegar kemur að því að ganga þá gengum við álíka hratt og hægfara skjaldbaka og stoppuðum á kaffihúsi til að chilla á svona hálftíma fresti ;) Hann Stefán fékk nett kaupæði þarna úti og verslaði heilan helling af fötum og skóm á sig. Ég keypti mér hinsvegar lítið enda í raun svo stutt eftir af þessari óléttu að það tekur sig varla. Við vorum svo ótrúlega heppinn að fá lánað fullt af fötum af Steinunni Völu og komum heim með fulla ferðatösku af barnafötum !! Við keyptum reyndar eitthvað sjálf þá aðallega minnstu fötin svo að barnið fari nú ekki alsbert heim af fæðingardeildinni. Fannst nú samt svolítið skrítið að versla svona ungbarnaföt þegar maður er ekki komið með barnið í hendurnar. Við náðum okkur því miður í einhverja leiðinda flensupest á heimleiðinni og eru bæði búin að liggja heima með hor og hósta í næstum viku. Stefán er nú allur að hressast en ég ætla að vera eitthvað lengur að hrista þennan viðbjóð af mér. Af bumbubúanum er allt gott að frétta. Bumbann stækkar með degi hverjum og krílið hreyfir sig mjög mikið. Stundum er hamagangurinn í henni svo mikill að ég hef á tilfinningunni að hún sé að reyna að brjóta sér leið út í gegnum kviðvegginn. Ég er búin að láta inn nokkrar myndir úr ferðinni ... endilega kíkið.  

27.08.2008 19:55

ÓléTTa, KrÓAtía, Ný viNNa, FraKKland ... sumar sól og hamingja :)



Já það hefur margt gerst á nokkrum mánuðum. Aðalfréttirnar eru þær að ég er orðin ólétt og það fyrir löngu enda gengin 25 vikur !! Ótrúlegt en satt ;) Þessi ólétta hefur nú ekki verið alveg eins auðveld og ég hélt hún yrði en þrátt fyrir ógleði, rifbeinsbrot, grindarverki og járnskort þá þýðir ekki annað en að brosa því lífið er bara svo yndislegt. Eftir að hafa legið með hausinn ofan í klósetinu í nokkrar vikur, horft á alla friends seríuna tvisvar og sex and the city seríuna einu sinni þá skellti ég mér til Króatíu í júní með honum Stefáni mínum og nokkrum frábærum hafnfirðingum. Ég fór föl og horuð til útlanda en kom heim tanned og sæt enda borðaði ég meira í þessari ferð en ég hafði gert vikum saman. Nokkrum dögum eftir heimkomuna mætti ég fersk í nýja vinnu. Ég var nú ekki búin að vera þar í marga daga þegar ég fór að finna fyrir óþægindum í grindinni. Ætlaði nú að hrista það af mér og skellti mér því í meðgöngusund sem á víst að vera svo styrkjandi og gott fyrir grindina. Því miður fór þetta bara versnandi og ég þurfti því fljótlega að minnka við vinnuna. Fyrir helgi fékk ég hins vegar þetta frábæra grindarbelti sem þjappar grindinni vel saman og ég er ekki frá því að nú sé allt aftur á uppleið :) Á næsta þriðjudag fljúgum við Stefán svo til Frakklands og stefnum á þriggja vikna chill hjá systir hans og fjölskyldu. Get ekki beðið.
P.s. Búin að setja inn myndir af fallegu ferðalöngunum.

13.04.2008 11:46

PaRtY pArTy PaRtY



Þessi helgi hefur verið afar róleg. Stefán er búin að vera á næturvöktum og ég hef reynt mitt besta við að vera dugleg að læra. Er reyndar orðin ansi þreytt á þessum lærdómi og verð mjög feginn þegar hann tekur enda nú í lok apríl. Síðasta helgi var hins vegar mjög skemmtileg. Við Stefán héldum þá partý í tilefni þess að hann átti afmæli í byrjun mars !! Við vorum búin að bjóða fullt af fólki í partý á þeim tíma en þá fékk ég einhverja leiðinlega flensupest og partýinu var því frestað. Stefán var reyndar rosalega lasin í þar seinustu viku en það kom ekki til greina hjá honum að fresta djamminu . Því miður dó diskókúlan okkar vinsæla í haust, hennar er enn sárt saknað. Ég tók fullt af myndum um kvöldið og er búin að láta þær í nýtt albúm.

21.03.2008 19:53

BLáFJöLL




Við Stefán keyptum okkur bretti fyrir tveimur árum síðan en þegar við prufukeyrðum búnaðinn í fjórða sinn þá datt Stefán og fór úr lið. Við fórum því ekkert á bretti síðasta vetur og ég er því jafnléleg nú og þegar brettið var keypt  Ég fór í dag upp í Bláfjöll með Agli Vali bróa og pabba. Það var GEGGJAÐ  veður ... sól og logn. Vonandi verður maður nú einhvern tímann góður á þessu blessaða bretti.

Today's page views: 0
Today's unique visitors: 0
Yesterday's page views: 24
Yesterday's unique visitors: 11
Total page views: 40549
Total unique visitors: 14481
Updated numbers: 17.5.2012 03:03:30