06.05.2012 16:11
Nýtt hlaupahjól !!

08.04.2012 05:28
Gleðilega páska



23.11.2011 15:24
Haustið ... komið og farið
26.08.2011 01:39
Orka í elhúsinu







19.08.2011 02:20
Laaaaangt síðan síðast ...
Tíminn flýgur ... og margt hefur gerst síðan síðast !! Enda allt of langt síðan að ég hef gefið mér tíma í að skrifa nokkrar línur um lífið hér í Kóngsins Köben.
Hvar á ég að byrja ?? ...
Við fjölskyldan fluttum í byrjun september 2010 ... það reyndist MJÖG erfitt að finna nýja íbúð og eftir margra vikna leit skrifuðum við undir eins árs leigu samning. Nú búum við í Köben NV (nord-vest), einum km frá Nørrebrostation og líkar það alveg ágætlega. Hverfið er ansi ólíkt gamla hverfinu í Rødovre, sem var rólegt og svolítið sveitalegt danskt úthverfi. Í nord-vest er hins vegar fjölþjóðlegur hrærigrautur með kebab-búllum og undarlegum matvörubúðum á hverju götuhorni. Blokkin sem við búum í er nýleg og íbúðin er björt og fín ... þetta er stærsta íbúðin sem við Stefán höfum búið saman í en hér höfum við sér eldhús, auka herbergi fyrir skonsuna, stórar svalir og geymslu !! Ekki slæmt.
Ingibjörg Þóra fékk pláss á leikskólanum Ørnen 11. október en fram að þeim tíma þurftum við að skutlast með skonsuna fram og til baka til dagmömmunnar í Rødovre !! Ég viðurkenni það alveg að við vorum bæði komin í nokkuð gott form eftir alla þessa hjólatúra en í lok dags hafði ég enga orku til að læra og var því ótrúlega feginn þegar hún fékk loksins pláss á leikskólanum ... sem er by the way við hliðiná blokkinni okkar. Við Stefán vorum bæði svolítið kvíðinn fyrir því að láta hana á leikskóla þar sem henni hafði ekki liðið alltof vel hjá dagmömmunni og þá sérstaklega þá daga sem dagmamman var með auka börn ... en þá var Ingibjörg Þóra alltaf eitthvað svo ósátt og vælinn hjá henni. Sem betur fer gekk ótrúlega vel að aðlaga dömuna að leikskólalífinu og við Stefán finnum að hún er ánægð og líður vel þar.
Fyrir framan leikskóladeildina sína núna í ágúst með Agli Vali og Bylgju :)
Ég kláraði stóra prófið á annarri önn korter í jólin og nokkrum dögum seinna komu amma, afi og Egill Valur til Kaupmannahafnar og voru hjá okkur yfir jólahátíðina. Fyrstu jólin okkar hér í Köben voru því extra dásamleg ... frábær endir á viðburðarríku ári. Nýja árið byrjaði því miður ekki jafn vel en við fjölskyldan lágum með viðbjóðslega magapest allan janúar !! Ingibjörg Þóra greyið tapaði fallegu bumbunni sinni og mamman missti nokkur dýrmæt kíló. Ég kláraði síðan fyrsta árið í læknisfræðinni í lok janúar og við mæðgurnar skelltum okkur eftir það í tveggja vikna fitunarbúðir til Íslands. Við áttum yndislegar tvær vikur ... og mamman át ís með súkkulaði/karamellu sósu og ávöxtum á hverju einasta kvöldi !!
Þriðja önnin mín við Kaupmannahafnarháskóla byrjaði með látum í febrúar ... úúúfffff þetta var svakaleg önn ... ég hef aldrei lært jafn mikið og á sama tíma aldrei fundist ég jafn óundirbúin fyrir próf !! Sem betur fer gekk þetta helvíti upp og ég komst í langt og gott sumarfrí í byrjun júní :)
Ingibjörg Þóra hefur þroskast heil mikið nú á stuttum tíma en hún er LOKSINS farin að tala !! Hún sagði alls fimm orð þegar við fluttum hingað út, þá 14 mánaða gömul ... en svo ákvað hún bara að þegja. Hún myndaði alltaf svo sem voðalega fjölbreytt hljóð en vildi ekki mikið vera að segja meira en mamma, amma og svo seinna bættust við pabbi og afi. Í langan tíma sagði hún bara amma allan daginn en steinhætti því skyndilega einn daginn og kallaði ömmur sínar lengi vel bara mömmu. Mamma kom til okkar í stutta heimsókn síðasliðið haust og upp úr því fór skonsan að tjá sig meira enda er mamma svo dugleg að lesa fyrir hana. Eftir það fór Ingibjörg Þóra að segja endingar á mörgum orðum ... vettlingar voru t.d. gaaaa ... en það eru því miður ansi mörg orð sem enda eins og því var oft erfitt að skilja hvað skonsan vildi. Núna um jólin fékk hún í fyrsta sinn heitt súkkulaði með rjóma og á sama tíma sagði hún fyrstu tveggja orða setninguna ... "kakó með" ... vantaði bara rjóma.
Eftir heimsóknina okkar til Ísland síðasta janúar má segja að Ingibjörg Þóra hafi byrjað að tala því um leið og við komum aftur til Köben byrjaði hún bókstaflega að æla nýjum orðum !! Einn daginn þegar við löbbuðum heim úr leikskólanum benti hún á poll og sagði hátt og skýrt pollur !! ... og þannig komu mörg ný orð á hverjum degi. Fljótlega fór hún að mynda þriggja orða setningar, sú fyrsta var "afmæli í dag" og í mars sagði hún hátt og skýrt við matarborðið "mig har mere skinka !! Síðasta vor var skonsan því ekki aðeins farin að tala íslensku heldur kom danskan líka sterkt inn ... hún talaði í raun heilmikla dönsku, sagði t.d. "mammas", "tabbis" þegar hún meinti mamma á þetta osfr. Þegar hún svæfði dúkkurnar sínar þá sagði hún "baby sove" og við matarborðið heyrðist "mere, mere, mere".
Skonsan með Skoppu og Skrítlu eftir leiksýningu sl. janúar :)
Það er mikill léttir að Ingibjörg Þóra sé farin að geta tjáð sig svona vel því hún er svo skapstór og óþolinmóð að þegar við skildum hana ekki á fyrstu 10 sekúndunum þá var allt ónýtt og hún var farin að öskra og gráta ... enda vorum við Stefán alveg að vera gráhærð á barninu í vetur :/
Sumarið hér í Köben hefur verið yndislegt þrátt fyrir endalausa rigningardaga ... en fyrir vikið hef ég gert meira af því að slappa af en ég ætlaði mér :/ Stefán var því miður bara búin að vinna sér inn 3 vikna sumarfríi en við nýttum viku af því til að ferðast um Sjáland á hjólum !! Við skemmtum okkur rosalega vel í ferðinni, ég viðurkenni það alveg að þetta var töff en mikið vorum við ánægð með okkur þegar við komum aftur heim. Héðan í frá ætlum við að reyna að fara í hjólaferð á hverju sumri !!
Á leiðinni heim til Köben eftir frábæra hjólaferð :)
Afi kom til Kaupmannahafnar daginn eftir að við komum til baka úr ferðalaginu okkar og nokkrum dögum seinna fóru stungu þeir Stefán af til Berlínar ... hjólandi, hvað annað ;) Mamma kom til Köben sama dag og þeir lögðu af stað en alls voru amma og afi hjá okkur í þrjár yndislegar vikur. Egill Valur og Bylgja heimsóttu okkur síðan í 10 daga núna í Ágúst þannig að það er búið að vera fullt hús í nánast allt sumar !!
Ingibjörg Þóra var alls í fimm vikna sumarfríi frá leiksskólanum og daman er orðin ótrúlega dugleg að tala íslensku eftir þann tíma. Hún er nú farin að segja sjö orða setningar á íslensku ... svo kemur í ljós hvernig þetta þróast nú þegar hún er aftur byrjuð í leikskólanum. Leikskólakennarinn hennar nefndi við mig í gær að hún hefði talað mjög mikla íslensku þann daginn og að hún hafi átt í mestu vandræðum með að skilja stelpuna ... greyið barnið.
Nú er stutt í að skólinn byrji aftur hjá mér :/ Úúúffff ég get ekki sagt að ég sé alveg tilbúin að byrja aftur en maður verður bara að spíta í lófana, seinasta önn var svo erfið að ég er enn með blóðbragð í munninum !! Það er víst sem betur fer versta önnin og nú er hún yfirstaðin :)
10.06.2010 23:39
Góður gestur kominn í heimsókn !!


Afi hefur fengið alveg ágætlega gott veður hér í Kaupmannahöfn ... það hefur reyndar verið svolítil rigning af og til en þess á milli hefur sólin verið hátt á lofti. Eins og sést hér á myndunum hafa skonsan og afi verið dugleg við að leika úti og Ingibjörg Þóra er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt og skemmtilegt í náttúrunni. Henni finnst svo gaman að týna blóm og reita gras en það nýjasta er að sveifla löngun greinum út í loftið :)Síðastliðinn þriðjudag fór ég í mitt fyrsta próf í KU en það var munnlegt próf á dönsku. Ég var nú alveg nett stressuð fyrir það enda ekki sú besta orðin í dönskunni :/ Prófið gekk hins vegar alveg glimmrandi vel og núna á ég því bara eitt próf eftir en það er 22. júní. Ég sit því nú alla daga og les ... versta við þetta er að bækurnar eru á ensku en svo þarf ég að skrifa á dönsku í prófinu ... æ þetta reddast ;)Á morgun fáum við svo annan góðan gest í heimsókn en þá kemur amma skonsunnar til okkar :) Hún ætlar að vera hjá okkur til mánaðarmóta júní/júlí ... Ingibjörg Þóra fær því nóg af dekri, knúsum og kossum það sem eftir er mánaðarins ... ekki slæmt fyrir litlu skonsuna að hafa bæði afa og ömmu til að passa sig :)
18.05.2010 17:18
Dagmömmu og tannlækna heimsókn !!
Í dag fór litla skonsan okkar í fyrsta sinn til tannlæknis !! Heimsókninn fór nú nánast alveg eins og við Stefán áttum von á ... tannlæknirinn kíkti aðeins upp í munninn á dömunni og spurði svo hvort við værum ekki dugleg að bursta tennurnar hennar. Ingibjörgu Þóru fannst nú ekkert skemmtilegt að einhver ókunnug kona skildi vera að troða fingrunum upp í munninn sinn og fór að gráta. Tannlæknirinn bætti upp fyrir þetta vesen sitt með því að gefa dömunni tannbursta og límiða og þá varð litla skonsan glöð á ný. Það kom mér reyndar á óvart að hún lagði sterka áherslu að ég myndi hætta með dömuna á brjósti því að móðurmjólkin væri svo sæt og gæti þar af leiðandi farið mjög illa með tennurnar. Ég sagði henni að við Stefán burstuðum alltaf tennurnar hennar eftir kvöldsopann og að hún fengi ekki brjóst á nóttinni. Síðan bætti ég við að það væri planað að hætta brjóstagjöfinni í sumar þegar við færum í heimsókn til Íslands. Viðtalinu lauk þannig að hún sagði að flest börn kæmu aftur í skoðun þegar þau yrðu þriggja ára en hún vildi gjarnan sjá Ingibjörgu Þóru aftur í ágúst til þess að fylgjast með hvernig það gengi hjá okkur að hætta brjóstagjöfinni !!
Eftir tannlæknaheimsóknina hjóluðum við fjölskyldan út í búð. Ingibjörg Þóra fékk að hlaupa um í búðinni og í þetta sinn var hún alveg sérstaklega handóð. Skonsunni leist greinilega einstaklega vel á úrvalið af dýramat og áður en ég vissi af var hún búin að henda nokkrum dósum af kattarmat ofan í körfuna hjá pabba sínum ;)



16.05.2010 17:40
Nýtt lanD og Nýtt náM ...




03.07.2009 16:00
Sumar og sól



... Sautjándi júní var sannkallaður fjölskyldudagur hjá okkur. Við byrjuðum daginn snemma hjá mömmu og pabba upp í Hafnarfirði ... um daginn gengum við upp á Víðistaðatún og um kvöldið fórum við niðrí miðbæ til að hlusta á Egó. Ingibjörg Þóra var alveg steinhissa á öllu þessu fólki ... hún sat róleg í kerrunni sinni, setti upp svolítið alvarlegan svip og fylgdist vel með því sem var að gerast í kringum sig. Daginn eftir þjóðhátíð fórum við Sigrún með litlu grislingana okkar í heimsókn í Mosfellsbæinn til Guðrúnar Valdísar og Sögu Maríar. Ingibjörg Þóra var voða hrifin bæði af Kristjáni Víði og Sögu Maríu. Þetta var í raun í fyrsta sinn sem mér fannst hún ekki vera óörugg í kringum önnur börn ... hún skoðaði Sögu Maríu vel og vandlega og Kristján Víðir fékk að gefa henni nokkra góða kossa á kinnina. Eftir frábæran dag í Mosfellsbænum drifum við fjölskyldan okkur upp í sveit þar sem við hittum Heiðu, Randver, Klöru, Hákon, Hildu og Oddgeir í bústaðnum sem mamma hennar Heiðu á. Þar var grillað í góðu veðri, spjallað og hlegið langt fram á nótt. Morguninn eftir var sólarlanda veður og Heiða bakaði vöfflur í hádegismat sem við borðuðum úti í sólinni. Um hádegisleytið kvöddum við gengið góða og héldum í Hvamm, bústaðinn hennar ömmu Sigrúnar. Mamma, Helga frænka og Beggi voru mætt á svæðið og byrjuð að gróðursetja. Veðrið var eitthvað svo æðislegt og náttúran svo falleg þannig að við Stefán ákváðum að gista í bústaðnum. Sama kvöld rúntuðu Heiða og Randver í heimsókn og við "fullorðna fólkið" skelltum okkur í pottinn meðan Ingibjörg Þóra svaf. Ég skemmti mér að sjálfsögðu konunglega á trampólíninu í bústaðnum ... hoppaði alveg eins og óð kengúra daginn sem við komum og var svo að farast úr harðsperrum daginn eftir ... greinilega í fáránlega lélegu formi :/ Ingibjörg Þóra kunni svona líka rosalega vel við sig í Hvammi því hún svaf sérstaklega vel þá nóttina og tók tvo extra langa lúra daginn eftir ... þeir voru svo langir að við komum ekki aftur í bæinn fyrr en seint á laugardagskvöldið.


16.06.2009 17:22
Komin aftur í bæinn eftir fyrstu hringferð sumarsins !!




Ingibjörg Þóra babblar meira og meira með hverjum degi sem líður. Hún tekur oft fyrir eitthvað eitt þema á dag ... t.d. frussar eða segir bara dadada allan daginn !! Meðan við dvöldum á Eskifirði hló litla daman meira en hún hafði gert frá fæðingu ... okkur Stefáni fannst þetta ekki slæmt því það er óendanlega krúttlegt að heyra hana hlæja. Hún ákvað nú samt af einhverri ástæðu að fara í hláturpásu þegar við komum aftur í bæinn ... kannski fannst henni bara svona rosalega gaman í sveitinni ... hver veit ??





08.05.2009 08:13
KnÚs KnÚs KnÚs



29.04.2009 22:18
5 mánaða OFURBOLLA :)

Nú er Ingibjörg Þóra loksins farin að hreyfa sig eitthvað um á leikteppinu ... 26. apríl byrjaði hún allt í einu að grípa í tærnar sínar og velta sér yfir á hliðarnar. Hún fer nú ekkert langt en nær að rugga sér um á teppinu og finnst þetta greinilega mikið sport. Skonsunni finnst líka mjög gaman að æfa sig að sitja og við Stefán höldum að hún verði bráðlega farin að sitja án stuðnings.
23.04.2009 22:18
Sumarið er komið ...
Frakklands fólkið fríða flýgur nú heim í nótt eftir 2 vikna frí hér á Íslandi. Ingibjörg Þóra hitti frændfólk sitt Gumma, Ragnheiði Völu og Stefán Frey í fyrsta sinn en Þóra Vala og Steinunn Vala hittu skonsuna þegar þær komu í skírn hennar fyrr í vetur. Ég reyndi að vera dugleg að fara með Ingibjörgu Þóru í heimsókn til þeirra meðan þau dvöldu hér á landi enda ekki líklegt að hún sjái þau aftur fyrr en kannski næsta vetur. Litla mannafælan mín vildi nú ekki leyfa frændfólki sínu að halda á sér fyrst um sinn en hún var fljót að taka þau í sátt ... enda frábær öll sömul. Steinunn Vala var einstaklega áhugasöm um litlu frænku sína og vildi endalaust knúsa hana og kyssa ... synd að þær skuli búa svona langt í burtu frá hvor annarri.

Ingibjörg Þóra heldur áfram að blása út og það verður gaman að fara með dömuna í fimm mánaða skoðun nú í lok mánanaðarins. Ólíkt foreldrum sínum virðist sú litla ætla að verða morgunhani en eftir að það byrjaði að birta svona snemma þá er Ingibjörg Þóra farin að vakna milli klukkan sjö og átta á morgnanna og stundum byrjar hún jafnvel að rumska um sex leytið ... mömmu sinni til mikillar ánægju. Nú er hún yfirleitt sofnuð milli níu og tíu á kvöldin en vaknar enn oft og mörgu sinnum yfir nóttina til að fá að drekka ... vonandi breytist það þegar hún fer að borða fasta fæðu.
Í fyrradag uppgötvaði Ingibjörg Þóra tærnar sínar í fyrsta sinn og nú finnst henni voða gaman að toga í þessar fallegu táslur ... ætli hún reyni ekki bráðum að troða þeim upp í sig litla krúttið. Í dag á sumardaginn fyrsta fórum við í hádegiskaffi til ömmu og afa í Hafnarfirði og Ingibjörg Þóra fékk stútkönnu og naghringi í sumargjöf. Hún kunni nú bara vel við þessa litlu stúkönnu því hún greip um hana með báðum höndum og fékk sér vænan vatnssopa úr henni !!
12.04.2009 15:23
Gleðilega páska

Páskabollan hún Ingibjörg Þóra Stefánsdóttir með fyrsta páskaeggið sitt :)
11.04.2009 19:37
UngBarnaSundsTími II
Við fjölskyldan fórum í annað sinn í ungbarnasund eldsnemma í morgun.

Ingibjörg Þóra stóð sig rosalega vel. Hún entist aðeins lengur í þetta sinn og náði alveg að klára tímann. Henni líður greinilega vel í vatninu og hefur gaman af því að busla í lauginni.

Litla skonsan okkar hefur sofið extra lengi þessa tvo daga sem við höfum farið í sund. Kannski er ráð að fara oftar í sund til þess að rjómabollan sofi betur á daginn.




